Færsluflokkur: Bloggar

Greiðsla til kennara í Garðabæ

Forvitnilegt og flott að sjá og heyra hvernig Garðabær bregst við og, ef mínar upplýsingar eru réttar, þá hafa fleiri sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu gert slíkt hið sama. Við þetta vakna upp tvær spurningar:

1. Hver eru viðbrögð launanefndar sveitarfélaganna?

2. Hvað ætla önnur sveitarfélög að gera í málum sinna starfsmanna? Mega þeir vænta sambærilegra greiðslna?

 


mbl.is Greiðsla til kennara í Garðabæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nútíma lýðræði

Já, sjálfstæðismenn halda víða dauðahaldi í valdið. Á Akranesi koma þeir í veg fyrir að þeir flokkar sem ekki eiga kjörinn fulltrúa í bæjarráði fái að sitja þar og hlusta án þess að fá greitt fyrir það. Svona er nú lýðræðisástin mikil.

 


mbl.is 25,9% Reykvíkinga styðja nýjan meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt

Aðför Guðjóns Ólafs Jónssonar Birni Inga Hrafnssyni bar árangur. Hún er í senn ótrúleg og óvenju gróf. Hún er enn ótrúlegri fyrir þær sakir að upphafsins má leita innan þeirra eigin flokks. Virðist fyrst og fremst mjög persónuleg!

 

 


mbl.is Björn Ingi hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beðið eftir Margréti?

Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrrverandi og tilvonandi borgarstjóri Reykjavíkur, margendurtók á blaðamannafundi síðastliðið mánudagskvöld að málefnasamningur Sjálfstæðismanna og Ólafs F. Magnússonar væri byggður á traustum grunni. Þegar upp er staðið er hann ekki traustari en svo að Sjálfstæðismenn vissu ekki að þeir hefðu samið við Ólaf einan og óstuddan. En þar kom reyndar skýringin á því hversu lítið glaðir borgarfulltrúar nýja meirihlutans virtust á blaðamannafundinum fræga. Eins og allir vita þá seinkaði fundinum. Skyldi ástæðan vera sú að borgarfulltrúarnir voru að bíða eftir Margréti Sverrisdóttur?
mbl.is Töldu Margréti með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrustu og ódýrustu leikskólagjöldin

Á fundi bæjarstjórnar í gær var kynnt samantekt sem bæjarfulltrúar minnihlutans hafatekið saman um leikskólagjöld í 14 sveitarfélögum. Upplýsingarnar eru fengnar af heimasíðum viðkomandi sveitarfélaga. Af þessari samantekt má ráða að foreldrar á Akranesi borga umtalsvert meira fyrir leikskólavist barna sinna en foreldrar í nánast öllum þeim sveitarfélögum sem við berum okkur saman við.

Látum tölurnar tala sínu máli. Öflugt sveitarfélag eins og Akranes verður að ákveða hvort það ætlar að fjárfesta í steinsteypu eða fólki.

  Dýrustu og ódýrustu leikskólapláss á Íslandi                                             Almennt gjald fyrir eitt barn með fæði                       

Sveitarfélag                           Grunngjald                2. barn                      3. barn                  Annað

 

Ísafjörður

 

30.448

 

30%

 

60%

 

5 ára fá 4 klst/dag frítt

 

Garðabær

 

29.970

 

50%

 

75%

 

5 ára fá 6 klst/dag frítt

 Akranes 28.432 25% 50%  
 

Borgarbyggð

 

28.248

 

25%

 

50%

  
 

Seltjarnarnes

 

27.295

 

50%

 

100%

  
 

Vestmannaeyjar

 

26.580

 

50%

 

80%

  
 

Fljótsdalshérað

 

26.265

 

25%

 

50%

  
 

Árborg

 

25.749

 

50%

 

100%

  
 

Reykjanesbær

 

24.350

 

50%

 

100%

  
 

Mosfellsbær

 

23.810

 

50%

 

100%

 

5 ára börn borga ekki

 

Hafnarfjörður

 

22.797

 

30%

 

60%

  
 

Akureyri

 

22.199

 

30%

 

60%

  
 

Reykjavík

 

20.150

 

100%

   

5 ára börn borga ekki

 

Kópavogur

 

19.924

 

25% (?)

 

75%

  
 

Hvalfjarðarsveit

        
 

 


Uppsagnir hjá HB Granda hf.

Á fundi bæjarstjórnar Akraness í dag 22. janúar 2008 var samþykkt samhljóða ályktun vegna uppsagna hjá HB Granda hf. sem tilkynnt var um í gær.

Í ályktuninni segir m.a.

Bæjarstjórn Akraness harmar að stjórn og stjórnendur HB Granda hf hafi gripið til þeirrar óheillaákvörðunar að segja upp öllum starfsmönnum fyrirtækisins sem vinna í fiskvinnslu á Akranesi og tapa þar með í leiðinni miklum mannauði og trúverðugleika. Ákvörðunin kemur verulega á óvart eftir fyrri yfirlýsingar og fyrirheit stjórnarformannsins, Árna Vilhjálmssonar. Bæjarstjórn lýsir yfir megnri óánægju með ákvörðun stjórnar og stjórnenda fyrirtækisins en með henni eru þeir í raun að semja lokakaflann í 100 ára atvinnusögu útgerðar og fiskvinnslu á Akranesi. Með ákvörðun um stórfelldar uppsagnir starfsfólks í fiskvinnslu...er vegið alvarlega að grundvallar atvinnustarfsemi í bæjarfélaginu og lífsviðurværi bæjarbúa. Bæjarstjórn mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum sem stjórnendur fyrirtækisins hafa viðhaft við niðurskurð starfa á Akranesi á undanförnum misserum og ekki síst þeirri ákvörðun sem tilkynnt er nú um. Uppsagnir eru gerðar í nafni hagræðingar sem orkar mjög tvímælis m.a. í ljós ákjósanlegra aðstæðna...til útgerðar og fiskvinnslu...Bæjarstjórn óskar tafarlaust eftir fundi ...með stjórn og stjórnendum HB Granda hf þar sem þeir geri grein fyrir ákvörðunum sínum og framtíðarrekstri fyrirtækisins á Akranesi...

 

Allir þeir bæjarfulltrúar sem tóku til máls gagnrýndu uppsagnirnar harkalega. Guðrún Elsa Gunnarsdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins gat margfeldiáhrifa þeirra en uppsagnirnar hafa vitaskuld áhrif á fyrirtæki sem þjónustað hafa HB Granda og hugsanlega starfsmenn þeirra. því má ekki gleyma, málið teygir anga sína víða. Það er mikilvægt fyrir alla Akurnesinga að standa saman í þessu máli og snúa bökum saman gegn hagsmunum þeirra sem hafa eigin gróða- og hagræðingarsjónarmið ein að leiðarljósi.


Hver vill ekki vinna með hverjum?

Yfirlýsing Ólafs F. Magnússonar er hreint ótrúleg. Í hverju eru vonbrigði hans fólgin? Hann semur við Sjálfstæðisflokkinn um meirihlutasamstarf í borgarstjórn án samráðs við sitt nánasta samstarfsfólk, sprengir meirihlutann sem flokkurinn hans átti aðild að, spyr hvorki kóng né prest og skilur svo ekki neitt í neinu. Við hverju bjóst maðurinn eiginlega?

Það sem vakti þó meiri athygli mína frá fréttamannafundinum í gærkvöldi var hvað borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins virtust lítið glaðir.


mbl.is Mikil vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grundvallarstefnan?

Nýi meirihlutinn ætlar að setja allt upp á borð varðandi REI og OR. Leiðari MBL talar um að menn eigi að láta almannahagsmuni ráða og fylgja sannfæringu sinni í OR- málinu.

Er nema von að maður spyrji hver sú sannfæring er eða hvenær hún varð til? Hún var ekki til þegar allir flokkar í borgarstjórn samþykktu 2001 að OR mætti stunda áhætturekstur! Hún var ekki til þegar lög um hið sama voru samþykkt á Alþingi með atkvæðum þingmanna úr öllum flokkum. Og hún var ekki til í mars 2007 þegar Guðlaugur Þór, þáverandi stjórnarformaður OR og núverandi heilbrigðisráðherra, lagði til að stofna sérstakt fyrirtæki um útrásarþáttinn.

Þessi sannfæring var heldur ekki til þegar Landsvirkjun undirritaði í febrúar 2007 samning við Landsbankann um stofnun alþjóðlegs fjárfestingarfélags sem ætlað var að fjárfesta erlendis í verkefnum um endurnýjanlega orkuvinnslu.

Þessi sannfæring var ekki til þegar Vilhjálmur Vilhjálmsson gerði margumtöluð mistök síðastliðið haust í stjórn OR. Verða menn ekki að upplýsa a.m.k. borgarbúa og jafnvel fleiri um það hvenær þessi grundvallastefna eða sannfæring Sjálfstæðisflokksins varð til.

 

 

 


mbl.is Allt upp á borð varðandi REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steyptir stígar og bílastæði - frágangur

Þótt ég skrifi mikið um samstarf (eða samstarfsleysi) innan bæjarstjórnar þá er ég fyrst og fremst íbúi á Akranesi og tjái mig auðvitað líka sem slíkur. Ég hef búið í Jörundarholti síðan 1984. Íbúar í hverfinu hafa lengst af mátt þola að leikvöllur þess sé illa búinn leiktækjum og almennt lítt aðlaðandi en það er mál út af fyrir sig. Við höfum oftast haft meiri áhyggjur af því að börnin sem hér búa þurfa mörg að fara yfir ófrágengin stórbílastæði til að komast á leikvöllinn.

Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum var ákveðið við skipulag Jörundarholts að gera ráð fyrir bílastæði fyrir stóra bíla. Með stórum bílum á ég við fhlutningabíla, jafnvel með tengivögnum, sömuleiðis vörubíla að ógleymdum skurðgröfum og ýmsum fylgihlutum þeirra.

Árum saman var merkið fyrir stórbílastæði á vitlausum stað í Jörundarholti hinu efra en með frekju var hægt að fá það flutt þangað sem því var ætlað að vera samkvæmt skipulagi en það var auðvitað í óþökk íbúanna í neðri hlutanum.

það eru ótrúlegustu hlutir, tæki og tól geymdir á þessum bílastæðum og ég held að fólk trúi því ekki nema skoða það sjálft. Í blíðviðrinu síðastliðið sumar voru t.d. kamrarnir sem notaðir voru á fótboltamóti á vegum ÍA í lok júní fluttir á stórbílastæðið í Jörundarholti og geymdir þar þangað til þeir fóru á írska daga. Þetta var alveg sérstakt augnayndi þegar íbúarnir voru fyrir utan húsin sín á góðviðrisdögum.

Þegar umhverfisnefnd sendi síðastliðið haust bæjarbúum bréf um að nú væri komið að almennri tiltekt í bænum þá var endalaust hlaðið verkfærum, vinnutækjum og guð má vita hverju á stórbílastæðið í neðra Jörundarholtinu. Athugasemdum íbúanna var ekki svarað. Vitað er að í því ákveðna tilviki var skýring til staðar en vegna þess að íbúar fengu ekki svar eða skýringu þá urðu leiðindi sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir.

Ég hef horft á menn sem búa niðri í bæ koma keyrandi með hestakerrurnar sínar og skilja þær eftir á þessum bílastæðum og keyra svo í burtu. Hvers á fólk að gjalda?

Við sem búum í Jörundarholtii viljum að stórbílastæðunum verðii komið í burtu, að bærinn leggi bundið slitlag á bílastæðin sem verði ætluð fólksbílum og gangi frá þeim með sambærilegum hætti og gert er annars staðar í bæjarfélaginu. Það er óþolandi að búa áratugum saman við ófrágengin opinber svæði eins og við höfum þurft að gera. Mér er jafnljóst og öðrum að núverandi meirihluti hefur starfað stutt og þeir sem voru á undan bera ábyrgðina ekki síður ef fólk vill ræða það sérstaklega. En þegar menn setja niður á blað í löngu máli allt sem á að gera í þessum efnum, þá stingur í stúf að fjölmennt íbúðarhverfi skuli enn einu sinni sitja á hakanum. Við það verður ekki unað.

 

Núna ætlar


Forgangsröðun og lýðræði

Bæjarbúar velta fyrir sér leikskólagjöldum og bera kostnað á Akranesi saman við nágrannasveitarfélögin. Það er fullkomlega eðlilegt en sá samanburður er mjög óhagstæður fyrir Akraneskaupstað.

Bæjarfulltrúar minnihlutans hafa á þessu kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögur sem myndu lækka framfærslukostnað fjölskyldna á Akranesi, ekki síst barnafjölskyldna.  Þessar tillögur hafa t.d. verið um lækkun dagvistunargjalda og að hætt verði við hækkun á verði í mötuneytum leik- og grunnskóla þegar virðisaukaskattur á að lækka. Meirihlutinn hefur engan áhuga á svona tillögum. Tillögurnar birti ég hér fyrir neðan til fróðleiks fyrir þá sem vilja lesa þær.

Það er alveg sama hvar við berum niður. Meirihlutinn hugsar fyrst og fremst um að reisa sér minnisvarða úr steinsteypu en miklu síður um hagsmuni þess fólks sem býr á Akranesi. En verum minnug þess hverjir það eru sem borga fyrir minnisvarða meirihlutans.

 

Fjárhagsáætlun 2007:

Bæjarstjórn Akranes samþykkir að lækka leikskólagjöld um 25% frá byrjun árs 2007. Þetta verði gert til að auðvelda barnafjölskyldum að ala upp börn á Akranesi og einnig til að fylgja eftir umræðum og loforðum fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar. Lækkun skólagjalda um 25% á árinu 2007 minnkar tekjur bæjarsjóðs um 17,5 milljónir. Til að mæta þessum kostnaði verði byggingarleyfisgjöld og fasteignagjöld af atvinnuhúsnæði hækkuð en þau gjöld eru mjög lág á Akranesi í samanburði við nágrannasveitarfélögin.“  

Tillagan felld 5:4.  Með SK, GPJ, HR, RH.

 

"Í ljósi þess að virðisaukaskattur og vörugjöld á matvælum verður lækkaður 1. mars n.k. þá leggjum við undirrituð til að hætt verði við þá hækkun í mötuneytum leik- og grunnskólanna sem taka á gildi um áramót.”

Tillögunni var vísað til bæjarráðs og síðan felld.

 

Fjárhagsáætlun 2008:

Leikskólagjöld – systkinaafsláttur

“Bæjarstjórn Akraness samþykkir að breyta systkinaafslætti á leikskólum bæjarins og hjá dagmæðrum þannig að foreldrar systkina greiði aðeins fyrir eitt barn.” Greinargerð með tillögu

Á undanförnum árum hefur verið lögð áhersla á að gera Akranes að eftirsóknarverðum búsetukosti ekki síst fyrir ungt fólk. Ljóst er að kostnaður foreldra vegna leikskólagjalda getur verið íþyngjandi. Með þessari tillögu er komið til móts við barnafjölskyldur á Akranesi og kostnaður færður nær því sem gerist í nágrannasveitarfélögum.

Tillagan var felld.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hrönn Ríkharðsdóttir
Hrönn Ríkharðsdóttir
Skagamaður af 54-módelinu, Arsenal-aðdáandi og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akranesi.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband