1.3.2008 | 21:02
MBL - Trúverðugur fjölmiðill? 9% treysta borgarstjórn!
Ég hef ekki skrifað neitt í þessari viku, legið í dvala, ef svo má segja. Aðeins sett athugasemdir við nokkrar fréttir mbl.is en þar með er sagan búin. Lofa bót og betrun í næstu viku.
Ég var hugsi þegar ég las frétt í Morgunblaðinu í dag þess efnis að 90% aðspurðra í þjóðarpúlsi Gallup treystu Háskóla Íslands. Það var sem sagt fyrirsögnin. Í millifyrirsögn sagði að 42% treystu Alþingi. Gott mál. En það sem vekur athygli er að Morgunblaðið víkur sér markvisst undan því að nefna að eingöngu 9% aðspurðra treystir borgarstjórn. Það hefur komið fram í öðrum fjölmiðlum síðustu daga og þögn Morgunblaðsins er hrópandi. Er það trúverðugur fjölmiðill sem segir ekki alla fréttina, velur það sem hentar og getur hins í engu? Ég segi nei.
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 1
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 94
- Frá upphafi: 44853
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 91
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.