Þá vitum við það!

Trúir því nokkur maður að Geir hefði látið Davíð fara? Að minnsta kostir ekki ég. Það er deginum ljósara að það skipti engu hversu lengi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar hefði setið. Davíð hefði setið jafnlengi í Seðlabankanum og kannski miklu lengur.

Kannski vissi Geir að þetta var tapað stríð og kannski hafði hann ekki áhuga á að setja Davíð skilyrði. Það veit enginn nema hann og kannski nánustu samstarfsmenn og trúnaðarvinir.

Þegar stjórnmálamenn hætta, þá hætta þeir. Svo geta þeir sótt um vinnu eins og annað fólk sem skiptir um starfsvettvang. Stjórnmálamenn þurfa ekki ölmusu í formi embættis. Þeir eru í fullum færum að leita sér að atvinnu. Þetta á ekki bara við um Davíð heldur miklu fleiri og úr öllum gömlu flokkunum. Það hafa allir dansað með. Á einhverjum tímapunkti verður að breyta um takt. Er kannski lag að gera það núna?


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hrönn Ríkharðsdóttir
Hrönn Ríkharðsdóttir
Skagamaður af 54-módelinu, Arsenal-aðdáandi og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akranesi.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 44751

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband