Byggðasafnið að Görðum rekið frá París?

Á síðasta fundi bæjarstjórnar var tekist á um Byggðasafnið að Görðum. Þar var afgreidd samþykkt meirihluta bæjarráðs um að hefja samningaviðræður við Adolf Friðriksson um rekstur Byggðasafnsins sem hann kynnti fyrir bæjarstjórn í október.  Á bæjarstjórnarfundinum var lögð fram eftirfarandi bókun um málið:

Undirritaðir bæjarfulltrúar mótmæla harðlega ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar að ganga til samninga um útvistun og einkavæðingu á starfsemi Safnasvæðisins að Görðum.Engin umræða hefur farið fram í bæjarstjórn um þessar fyrirætlanir, einungis boðað til tveggja stuttra kynningarfunda þar sem harla lítið tóm gafst til vandaðrar skoðunar á hugmyndum um einkavæðingu Safnasvæðisins, hugmyndum sem eru í senn á margan hátt áhugaverðar en líka á hinn bóginn óaðgengilegar.Þá ber að harma það að málið er unnið án nokkurs samráðs við starfsmenn safnanna, hugmyndirnar hafa ekki verið bornar undir safnaráð eða höfuðsöfnin á hverju safnasviði og ráðuneyti menntamála sniðgengið.  Með þessum hugmyndum verður eðli safnastarfseminnar breytt þannig að veruleg hætta virðist á að hún njóti ekki lengur þeirra fjárframlaga frá opinberum aðilum sem nú renna til safnasvæðisins.

Þá er samkvæmt hugmyndunum ætlunin að loka a.m.k. þrem söfnum á svæðinu og taka niður sýningu Byggðasafnsins að verulegum hluta.  Er það dapurleg ákvörðun á 50 ára afmæli safnastarfs að Görðum og lítil virðing við ötult starf merkilegra frumkvöðla á þessu sviði á Akranesi.“

Við þessa bókun má bæta efasemdum um að hugsanlegur samningur á fyrrgreindum nótum standist jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Og það sem undirritaðri fannst kannski merkilegast af öllu var að upplýst var eftir fundinn að Adolf Friðriksson væri búsettur í París.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hrönn Ríkharðsdóttir
Hrönn Ríkharðsdóttir
Skagamaður af 54-módelinu, Arsenal-aðdáandi og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akranesi.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 44762

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband