Daglegar seinkanir

Ég get ekki orða bundist lengur. Það eru nánast daglegar fréttir af seinkunum hjá Iceland Express og ekki bara einhverjar mínútur eða klukkutími. Nei, farþegar bíða klukkustundum saman á flugvöllum eftir flugi. Og ekki fást neinar bætur fyrir.

Ég hef einu sinni lent í ofbókuðu flugi. Það var raunar með erlendu flugfélagi og það var bætt á staðnum. Ekkert vesen; afsökunarbeiðni þegar í stað. Hótel, matur og skaðabætur borgað orðalaust.

Auðvitað eru skýringar á öllu saman en það vekur óneitanlega athygli hversu algengt þetta er. Og líka hitt að nú heyrir til undantekninga að slíkt gerist hjá Icelandair. Enda velur maður að borga aðeins meira fyrir trúna á að komast á leiðarenda á tilskildum tíma. Það er bara þannig.


mbl.is Tafir hjá Iceland Express
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alveg rétt en ef maður er að fara í helgarferð, kannski þrjá eða fjóra daga og vill ekki taka sjens á að eyða heilum degi í bið á flugvelli, þá er Icelandair betri kostur. Þeirri staðreynd verður Iceland Express að bregðast við að mínu mati.

Hrönn (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hrönn Ríkharðsdóttir
Hrönn Ríkharðsdóttir
Skagamaður af 54-módelinu, Arsenal-aðdáandi og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akranesi.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 44813

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 68
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband