Óverðtryggð á föstum vöxtum?

Það væri aldeilis búbót fyrir Íslendinga ef boðið væri upp á óverðtryggð lán með föstum vöxtum. Bankarnir buðu upp á óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum og það var ekki vænlegur kostur. Vaxtastefna Seðlabankans sá til þess að greiðslubyrði var óyfirstíganleg.

Nefni dæmi um 10 milljón krónu óverðtryggt lán frá Glitni. Nafnvextir (grunnvextir og grunnálag) er núna 17,26%. Meðalafborgun fyrsta árið væri  um 160 þúsund krónur og meðalafborgun  allan lánstímann er um 93 þúsund krónur. Þetta miðast við að vextir hækki ekki frá því sem nú er og enginn reiknar með því.

Sambærilegt lán en verðtryggt frá Glitni einnig er með 6,5% vöxtum (endurskoðunarákvæði) og 2,5% verðbólgu. Það verðbólgustig er markmið Seðlabankans en allir vita að það hefur ekki gengið eftir. Meðalafborgun fyrsta árið er um 60 þúsund og ef allur lánstíminn er skoðaður má ætla að meðalafborgun sé um 100 þúsund krónur.

Hagsmunir lántakenda eru algerlega fyrir borð bornir á íslenskum lánamarkaði. Bankarnir alltaf gulltryggðir með breytilegum vöxtum og verðtryggingu. Þeir fá sitt. Óverðtryggð lán með föstum vöxtum væri bylting. Áfram Allianz og Byr.


mbl.is Íhugar að bjóða óverðtryggð íbúðalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallur Magnússon

Það er misskilningur að þetta sé nýjun.  Öll gjaldeyrislán bankanna eru óverðtryggð! Þeir hafa nú þegar lánað tugi milljarða í slíkum óverðtryggðum íbúðalánum í erlendri mynt -þmt. evrum.

En fréttin um að nýr aðili sé að skoða markaðinn með það í huga að lána evrulán er jákvæð!

Hallur Magnússon, 22.4.2008 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hrönn Ríkharðsdóttir
Hrönn Ríkharðsdóttir
Skagamaður af 54-módelinu, Arsenal-aðdáandi og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akranesi.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 82
  • Frá upphafi: 44890

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 82
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband