22.8.2008 | 21:14
Hver skyldi hafa komið þessari frétt á framfæri?
Það kæmi ekki á óvart að starfsmenn forsetaframbjóðandans John McCain hefðu "látið vita" af þessu. McCain var hins vegar ekki með það á hreinu í sjónvarpsviðtali í vikunni hvað þau hjón ættu mörg hús en hann vissi að húsið sem Obama- fjölskyldan býr í í Chicago væri meira en milljón dollara virði. Það er alltaf spurning um sjá betur flísina í augum annarra en ekki bjálkann í eigin.
Auðvitað er þetta kosningabrella. Kannski sönn saga, ég veit ekki um það. En hitt veit ég að ömurlegar aðstæður fólks um allan heim batna pottþétt ekki nema repúblikanar flytji úr Hvíta húsinu. Það er bara hrikaleg tilhugsun fyrir okkur öll ef John McCain verður forseti Bandaríkjanna.
Í auglýsingu frá kosningaskrifstofu Barack Obama eru myndir af húsum McCain og í lokin kemur mynd af Hvíta húsinu og undir henni stendur: Þetta er hús sem bandaríska þjóðin hefur ekki efni á að John McCain búi í. undir það geta líklega flestir tekið.
Bróðir Obama fátækur einsetumaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 46660
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Og hvað með það?? Þetta hefði væntanlega verið stórfrétt á þínum bæ ef þetta hefði verið öfugt?
Guðmundur Björn, 22.8.2008 kl. 22:34
Ég tek undir með þér Hrönn.
Fyrir utan það þá vitum við ekkert um það hvernig þessi maður er eða hvað hefur farið á milli þeirra bræðra.
Sporðdrekinn, 23.8.2008 kl. 06:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.